Berghlaup verður þegar hluti bergs í fjalli losnar og hleypur fram. Jarðskjálftar eða skýfall getur komið af stað berghlaupi, slík hlaup gerast skyndilega og fara allt að 320 km hraða á klukkustund. Mestu berghlaup verða þegar eldfjöll hrynja en dæmi um slíkt varð í gosinu Mount st. Helens árið 1980. Afleiðingar berghruns er hægt að sjá í skriðum sem myndast í bröttum hlíðum eða við rætur hamra.