Snjóflóð eru framhlaup snævar, íss eða blöndu grjóts og íss niður hlíðar og fjalllendi. Snjóflóð verða þegar snjór rennur niður brekkur eða fjallshlíðar. Ástæður afhverju snjóflóð falla geta verið margar t.d veðrabreytingar og hvassviðri, jarðskjálftar, skyndilegur hávaði eða maðurinn sjálfur getur komið þeim af stað. Á Íslandi eru snjóflóð algengasta dánarorsök af völdum náttúruhamfara.